HESTAFERÐIR OG HESTALEIGURHestamennska skipar stóran sess í Skagafirði. Það kemur því ekki á óvart að víðsvegar í firðinum er að finna hestaleigur. Auk þeirra er vert að minna á stóðréttirnar á haustin sem hlotið hafa æ meiri vinsælda meðal ferðamanna.
GOLF
Hægt er að spila golf á tveimur völlum í firðinum.
Annar er Hlíðarendagolfvöllurinn sem er í eigu Golfklúbbs Sauðárkróks (453 5075)en hinn er í Lónkoti í
Sléttuhlíð(453 7432). Báðir vellirnir eru níu holu. Frá Lónkoti er frábært útsýni á eyjarnar Drangey og
Málmey sem setja mikinn svip á Skagafjörð.
ÁRSIGLINGAR (River Rafting)
Fyrir þá sem vilja mikla spennu er tilvalið að fara í ársiglingu niður Jökulsá vestari, Jökulsá austari, Hjaltadalsá eða
Kolku. Siglt er á gúmíbátum niður árnar og er boðið upp á siglingar fyrir reynda jafnt sem óreynda. Þessar ferðir njóta
mikilla vinsælda. Í Skagafirði eru tvö fyrirtæki sem bjóða upp á slíkar ferðir.
VEIÐI
Í Skagafirði eru mörg vötn og fjöldi áa þar sem hægt er að renna fyrir fisk, bæði silung og lax. Veiðileyfi eru seld í amk. 24
ár og vötn.
GÖNGUFERÐIR
Það er gaman fyrir göngugarpa að koma í Skagafjörð. Tilvalið er að ganga á Molduxa (706 m.y.s.) fyrir ofan Sauðárkrók og
Tindastól (989 m.y.s.) við utanverðan Skagafjörð.
Rétt er að vekja athygli á ferðaáætlun ferðafélags Skagfirðinga fyrir árið 2009 sem er að finna á heimasíðu
þeirra. Einnig bíður félagið til leigu skála á ýmsum stöðum fjarri mannabyggðum.
Sumarið 2001 voru gefin út göngukort með Gönguleiðum á Norðurlandi vestra. Fyrra kortið var með áherslu á gönguleiðir
á Skaga en það síðara var frá Skagafirði til Vatnsdals. Kortin fást víða í verslunum, eins og til dæmis í
verslunum Kaupfélagsins, en einnig er hægt að nálgast kortin í Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð.
Nánari upplýsingar fást hjá
Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð
Sími 455 6161 Netfang: upplysingar@skagafjordur.is
Einnig má finna upplýsingar á www.skagafjordur.com





