Gistiheimilið Mikligarður er opið allan ársins hring og er staðsett við Kirkjutorg, í miðjum elsta hluta
Sauðárkróks. Þar eru tólf notaleg herbergi með sjónvarpi og þráðlausu netsambandi. Góð eldunaraðstaða til afnota fyrir
gesti. Gistiheimilið Mikligarður er m.a. í göngufæri við golfvöll og sundlaug, auk veitingahúsa, skemmtistaða og verslana.
Verðlista gistiheimilisins er að finna HÉR; til að bóka gistingu, smelltu þá HÉR
Hér til hægri á síðunni má sjá meira um herbergin, eða fræðast um sögu hússins
Upplýsingar um allt það besta sem Skagafjörður býður ferðafólki, má finna HÉR!
Morgunverður er innifalinn í sumarverðum, en þarf að panta sérstaklega að vetri til.

Í þarnæsta húsi við gistiheimilið má sjá ísbjörninn fræga, sem var felldur á Þverárfjalli í júní árið 2008. Nánari upplýsingar, um opnunartíma o.fl., má finna HÉR!
Aðeins er um tveggja mínútna gangur í Sauðárkróksbakarí eða veitingahúsin Ólafshús og Kaffi Krók.
Gott útsýni yfir Sauðárkrók og Skagafjörð má fá af Nöfunum ofan við gistiheimilið, en það tekur innan við fimm mínútur að ganga þangað upp Kirkjustíginn.