Besta litla gistiheimilið á Norðurlandi

MIKLIGARÐUR - RÚSSLAND Í Króksbók Rotaryklúbbs Sauðárkróks segir að húsið Mikligarður (oft nefnt Rússland) hafi verið byggt af Sigurgeiri

Saga hússins

MIKLIGARÐUR - RÚSSLAND

Í Króksbók Rotaryklúbbs Sauðárkróks segir að húsið Mikligarður
(oft nefnt Rússland) hafi verið byggt af Sigurgeiri Daníelssyni
árið 1931. Steindór smiður teiknaði húsið en Kristján Sigtryggsson og
Jósep Stefánsson voru smiðir.

Húsið hefur alltaf verið kallað Rússland. Einn af smiðum hússins var Pétur Laxdal, faðir Sigurjóns heitins, fyrrum borgarfulltrúa í Reykjavík (faðir Skjaldar í Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar:).  Pétur sat í hreppsnefnd Sauðárkrókshrepps, fyrsti sósíalistinn á Íslandi til að ná kjöri í hreppsnefnd. Nafn hússins vísar trúlega til stærðar þess, sem þótti mikil þegar það var reist, og til stjórnmálaskoðana Péturs.

Þess má geta að húsið við hliðina á "Rússlandi/Miklagarði" ber nafnið Reykjarhóll, en var oftast í daglegu tali kallað Þýskaland.

Mynd augnabliksins

horses_1.jpg
Myndaalbúm

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf