Skagafjörður er fallegt og gróðursælt hérað á miðju Norðurlandi.
Landbúnaður er ein aðalatvinnugrein sýslunnar og eins og allir vita er hrossahald mikið og víðkunngt.

FRÁ GLAUMBÆ
Landbúnaður er ein aðalatvinnugrein sýslunnar og eins og allir vita er hrossahald mikið og víðkunngt.

FRÁ GLAUMBÆ
Sauðárkrókurer eini kaupstaður Skagafjarðarsýslu en á Króknum búa um 2600 manns sem hafa atvinnu af
útgerð, fjölbreyttum iðnaði og verslun og þjónustu í síauknum mæli, en á Sauðárkróki hefur til dæmis
Byggðastofnun höfuðstöðvar sínar. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er einnig staðsettur á Sauðárkróki.
Í Hofsósi búa rúmlega 200 manns en útgerð og fiskvinnsla eru aðal atvinnugreinar og ferðaþjónusta mjög vaxandi.
Aðrir þéttbýliskjarnar í Skagafirði eru Varmahlíð, sem er miðstöð ferðamannaþjónustunnar í firðinum, og
Hólar í Hjaltadal, en á Hólum er háskóli sem sérhæfir sig í hestabraut, ferðamálafræði og fiskeldi. Á
Hólum situr vígslubiskup Hólastiftis.





