Skagafjörður er fallegt og gróðursælt hérað á miðju Norðurlandi. Landbúnaður er ein aðalatvinnugrein sýslunnar og hrossahald
mikið og víðkunnugt. Sauðárkrókur er eini kaupstaðurinn í Skagafirði. Þar búa búa um 2600 manns sem hafa atvinnu af
útgerð, fjölbreyttum iðnaði, verslun og þjónustu. Á
Króknum hefur t.a.m. Byggðastofnun höfuðstöðvar sínar.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er einnig staðsettur á Sauðárkróki.
Í Hofsósi búa rúmlega 200 manns en útgerð og fiskvinnsla eru aðal atvinnugreinar og ferðaþjónusta mjög vaxandi.
Aðrir þéttbýliskjarnar í Skagafirði eru Varmahlíð, sem er miðstöð ferðamannaþjónustunnar í firðinum, og Hólar í Hjaltadal. Þar er háskóli sem sérhæfir sig í hestafræðum, ferðamálafræði og fiskeldi. Á Hólum situr vígslubiskup Hólastiftis.
Króknum hefur t.a.m. Byggðastofnun höfuðstöðvar sínar.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er einnig staðsettur á Sauðárkróki.Í Hofsósi búa rúmlega 200 manns en útgerð og fiskvinnsla eru aðal atvinnugreinar og ferðaþjónusta mjög vaxandi.