
Hótel Mikligarður er opið yfir sumarið, frá 1. júní til 20. ágúst. Á hótelinu eru 65 herbergi, öll með sér baðherbergi. Stutt er í sundlaug og alla helstu þjónustu. Bak við hótelið liggur skemmtileg gönguleið uppí Litla-skóg. Upp frá bílaplani hótelsins eru tröppur uppá Nafir, þaðan sem fallegt útsýni er yfir héraðið. Um þá sýn sagði skáldið og Króksarinn Hannes Pétursson: "Meðan ég held höfði yfir jörðu fylgir mér hvert sem ég fer sá sjónhringur sem ég hafði þar fyrir augum."
Á hótelinu eru fimm notalegar setustofur, þar af ein með sjónvarpi. Netsamband næst um allt hótel, ýmist þráðlaust eða beintengd. Gistingu fylgir morgunverðarhlaðborð og vínveitingasala er opin til miðnættis. Samstarf er við veitingahúsið Ólafshús um veislur og kvöldverði.
Hótelið býður einnig upp á svefnpokagistingu í 6 herbergjum, sem eru með sameigninlegu baði.
Smelltu HÉR til að skoða verðskrá; smelltu HÉR til að bóka herbergi.
Fyrir ýtarlegri upplýsingar um ferðaþjónustu í Skagafirði, smelltu þá HÉR












